Að heimsækja Ísland er mikil upplifun. Erlendir ferðamenn eiga það til að fyllast óöryggi við að gista á eyju í norðurhöfum. Okkar áskorun felst í að vera til taks og svara öllum þeim spurningum sem kunna að vakna þegar ferðin er undirbúin. Það er okkar trú, að þegar gestir okkar mæta jákvæðu og öruggu viðmóti, þá skipti ekki máli þótt rigni allan tímann eða að jörð sé hvít í júlí!




