Fréttir

Leggjum okkur 100% í hvert verkefni!

ferd
Þarna gengur hópur evrópskra blaðamanna á mosa í fyrsta sinn – tekið á miðnætti í hrauninu við Svartsengi eftir góða máltíð og sundsprett í Bláa lóninu.
„Róm var ekki byggð á einum degi og við gefum okkur bara tíma til að vaxa og eflast,“ segja þær stöllur, Birna Björg Berndsen og Þórunn Dögg Árnadóttir þegar spurt er hvernig gangi að byggja upp Athygli ráðstefnur, nýjasta fyrirtæki landsins á sviði ráðstefnu- og fundarhalds og viðburðastjórnunar. Fyrirtækið var sett á laggirnar í lok apríl á þessu ári af þeim Birnu og Þórunni og almannatengslafyrirtækinu Athygli.

„Það gefur auga leið að uppbygging á svona fyrirtæki er langhlaup því ráðstefnur eru jafnan skipulagðar með nokkurra ára fyrirvara,“ segir Birna sem hefur starfað í ráðstefnubransanum á annan áratug. „Verkefnastaðan fyrir 2012 og 2013 lítur vel út en við getum ennþá bætt við okkur fleiri verkefnum á næsta ári, hvort sem um er að ræða fundi, viðburðastjórnun, vettvangsferðir eða móttöku innlendra sem erlendra gesta,“ bætir Þórunn við. Hún er enginn nýgræðingur heldur og býr yfir mikilli reynslu í greininni.

Ágætis byrjun
Þrátt fyrir að Athygli ráðstefnur hafi aðeins verið starfandi í hálft ár hafa þær Birna og Þórunn haft í ýmsu að snúast auk markaðssetningar á fyrirtækinu. Í samstarfi við Athygli skipulögðu þær móttöku á hópum evrópskra blaðamanna í sumar fyrir samstarfsfyrirtæki Athygli í Þýskalandi og sáu um kynningarfund á vegum Evrópusambandsins fyrir íslensk fjármálafyrirtæki vegna lánastarfsemi til lítilla og meðalstórra fyrirtækja ásamt því að annast á dögunum undirbúning og skipulagningu 19. þings Lyflæknafélags Íslands, svo eitthvað sé nefnt.

„Við erum sannfærðar um að það leynast mörg ónýtt tækifæri í tengslum við ráðstefnuhald og atburðastjórnun hér heima og kvíðum ekki framtíðinni,“ segir Þórunn. Kannanir sem kynntar hafa verið nýlega sýna að óþarfi sé að óttast neikvæð áhrif efnahagshrunsins á ímynd Íslands sem ferðmanna- og ráðstefnulands. Þó svo að eldgosið í Eyjafjallajökli í vor hafi haft í för með sér tímabundna erfiðleika eru langtímaáhrifin þau að mun fleiri vita nú hvar Ísland er á hnettinum og áhuginn á að koma hingað er meiri en fyrir gos.

Reykjavík er frábær ráðstefnuborg
„Við erum bara bjartsýnar og ætlum okkur stóra hluti,“ segir Birna. „Reykjavík er frábær ráðstefnuborg, meðal annars vegna þess hversu lítil hún er. Það er stutt í alla þjónustu öfugt við það sem gerist víða erlendis þar sem ráðstefnugestir þurfa að ferðast um langan veg til að komast í miðbæ viðkomandi borgar.“

„Það sama gildir um ferðatengda þjónustu,“ bætir Þórunn við og bendir á að gestirnir eigi auðvelt með að njóta þess sem Ísland hefur upp á að bjóða. „Það er í raun svo stutt að fara til að upplifa sögu, dulúð og náttúrufegurð landsins og þó það hljómi eins og klisja þá er þetta allt við bæjarmörkin. Það þarf til dæmis ekki að fara lengra en upp á Hellisheiði til að komast í ævintýralega hellaskoðun,“ segir Þórunn. „Þetta er ómetanlegt,“ segir Birna, „því gestirnir eru yfirleitt frekar uppteknir meðan á ráðstefnu eða fundi stendur og því er alveg frábært að geta samt boðið upp á stuttar ferðir sem eru mikil upplifun í alla staði og krydda heimsókn ferðalangsins.“

Alltaf á tánum
Aðspurðar um hvað sé í pípunum setja þær stöllur upp pókersvip og neita, samkeppninnar vegna, að sýna á spilin og segjast geta lofað toppþjónustu öllum þeim sem til þeirra leita.

„Við erum fullar sjálfstrausts og vinnum hvert verkefni með því hugarfari að ganga alltaf skrefinu lengra, samtímis því sem við byggjum auðvitað á þeirri miklu reynslu sem við höfum aflað okkur á undanförnum árum,“ segir Þórunn og Birna bætir við að mikilvægt sé að hugsa út fyrir rammann og vera opinn fyrir nýjungum. „Við vinnum stöðugt að því að bæta alla þá þætti sem á endanum leiða til þess að viðkomandi viðburður heppnist fullkomlega, verði „total success“ svo maður sletti aðeins. Í því felst að skraddarasauma hverja ráðstefnu og hvern viðburð eftir óskum og væntingum viðskiptavinarins. Það krefst þess að við séum alltaf á tánum,“ segir Birna „og að sjálfsögðu gífurlegs aga og aukinnar vinnu en það gerir starfið okkar líka svo miklu skemmtilegra,“ segir Þórunn og botnar þannig setninguna hjá Birnu.

Og þetta er einmitt lýsandi fyrir samstarf þeirra Birnu og Þórunnar. Þær eru ekki bara nánir vinnufélagar heldur líka nánar vinkonur sem leggja sig 100% í hvert verkefni.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Þú ert hérna: Fréttir Leggjum okkur 100% í hvert verkefni!