Í dag tóku höndum saman Reykjavíkurborg, Icelandair Group og Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús og mynduðu kjölfestu fyrir nýjan samstarfsvettvang um markaðssetningu á Reykjavík sem alþjóðlegri ráðstefnu- og viðburðaborg, en samtals eru stofnaðilar 15 talsins.
Við hvetjum til samstarfs og erum tilbúnar í slaginn!
Fyrirtækið Athygli ráðstefnur er rekið af þeim, Birnu Berndsen og Þórunni Dögg Árnadóttur sem báðar hafa langa starfsreynslu á sviði skipulagningar og reksturs ráðstefna, funda og viðburða. „Við stóðum báðar á tímamótum og huga þurfti að framtíðinni, þá kom eiginlega ekkert annað til greina en að ráðast í að stofna fyrirtæki þar sem við gætum starfað við það sem okkur finnst skemmtilegast“. Aðspurðar segja þær að starfið sé lifandi og fjölbreytt og það séu forréttindi að fá tækifæri til að vinna með öllu þessu ólíka fólki úr mörgum og mismunandi fagstéttum samfélagsins. „Ekkert verkefni eða atburður er eins sniðinn, sem gerir starfið einnig sérstaklega sjarmerandi, við þurfum alltaf að vera á tánum þar sem hvert smáatriði skiptir máli.
Góðir fundir þurfa ekki að kosta mikið
Viðtal við Þórunni Dögg, ráðgjafa hjá Athygli ráðstefnum, birtist í Viðskiptablaði Morgunblaðisins þann 17. febrúar. Þórunn er mjög bjartsýn á möguleika Íslands sem alþjóðlegs ráðstefnulands. Hún bendir á að Ísland bjóði upp á marga kosti sem höfði til bæði ráðstefnuhaldara og gesta. “Sem dæmi eru allar vegalengdir stuttar og gestir kunna vel að meta að geta skoðað mikið af landinu í stuttum dagsferðum,” segir hún og bendir á að Ísland þyki framandi og áhugaverður áfangastaður.
Síða 1 af 3





