Ævintýralandið Ísland

Ævintýraeyjan Ísland

Erlendir ráðstefnugestir sem sækja ævintýraeyjuna Ísland heim eru flestir sammála um að það sé mikil upplifun, jafnvel þótt ekki sé eldgos í gangi.

meira +

Samstarfsaðilar

Samstarfsaðilar

Athygli ráðstefnur byggir þjónustu sína á góðu samstarfi við fjölmarga birgja og það er okkar markmið að hver viðburður verði einstakur.

meira +

Hafðu samband

Hafðu samband

Birna Björg Berndsen Birna Björg Berndsen
ráðgjafi ráðstefnur
Þórunn Dögg Árnadóttir Þórunn Dögg Árnadóttir
ráðgjafi ráðstefnur

Ráðstefnuborgin Reykjavík stofnuð 27. janúar 2012

Ráðstefnuborgin Reykjavík stofnuð 27. janúar 2012
Í dag tóku höndum saman Reykjavíkurborg, Icelandair Group og Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús og mynduðu kjölfestu fyrir nýjan samstarfsvettvang um markaðssetningu á Reykjavík sem alþjóðlegri ráðstefnu- og viðburðaborg.
27. jan. 2012
Í dag tóku höndum saman Reykjavíkurborg, Icelandair Group og Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús og mynduðu kjölfestu fyrir nýjan samstarfsvettvang um markaðssetningu á Reykjavík sem alþjóðlegri ráðstefnu- og viðburðaborg, en samtals eru stofnaðilar 15 talsins. Samstarfsvettvangurinn ber heitið Ráðstefnuborgin Reykjavík og er kjölfestufjármagn 95 milljónir. Stefnt er að því að öll helstu ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu verði aðilar að samstarfinu og að innan þriggja ára nemi framlög atvinnulífsins tvöföldu framlagi Reykjavíkurborgar.
Ferðaþjónusta tengd ráðstefnum, fundum og alþjóðlegum viðburðum af ýmsu tagi er eitt mikilvægasta sóknarfæri Reykjavíkur á næstu árum. Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa og önnur fjárfesting í borginni sem styður við ráðstefnuhald og þjónustu við ferðamenn bjóða upp á dýrmæt tækifæri sem brýnt er að nýta sem best. Mikilvægt er að leggja meiri áherslu á markaðssetningu Reykjavíkur sem ráðstefnu- og viðburðaborgar og ná þannig áhugaverðum alþjóðlegum viðburðum til borgarinnar.
Samkvæmt rannsóknum annarra ráðstefnuborga eru gestir sem tilheyra hópi MICE ferðamanna (Meetings, Incentives, Conventions, Events) afar verðmætir þar sem þeirra heimsóknir dreifast yfir allt árið, ekki síst vetrartímann, og þeir verja meira fjármagni í sínum heimsóknum en hinn hefðbundni ferðamaður.
Ráðstefnuborgin Reykjavík er eitt af forgangsverkefnum ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar, Styrkum stoðum, 2011 – 2020 sem samþykkt var í byrjun árs 2011.
Meðal markmiða sem Ráðstefnuborgin Reykjavík setur sér að ná innan þriggja ára eru:
-          Að árleg fjölgun ráðstefnu- og viðburðagesta til landsins verði 20%
-          Að árlegur tekjuauki vegna vaxtar í greininni verði að lágmarki milljarður
-          Að alþjóðlegar ráðstefnur í Reykjavík verði a.m.k. 30 á  ári

Í dag tóku höndum saman Reykjavíkurborg, Icelandair Group og Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús og mynduðu kjölfestu fyrir nýjan samstarfsvettvang um markaðssetningu á Reykjavík sem alþjóðlegri ráðstefnu- og viðburðaborg, en samtals eru stofnaðilar 15 talsins. 

Þú ert hérna: Forsíða