Fyrirtækið Athygli ráðstefnur er rekið af þeim, Birnu Berndsen og Þórunni Dögg Árnadóttur sem báðar hafa langa starfsreynslu á sviði
skipulagningar og reksturs ráðstefna, funda og viðburða. „Við stóðum báðar á tímamótum og huga þurfti að framtíðinni, þá kom eiginlega
ekkert annað til greina en að ráðast í að stofna fyrirtæki þar sem við gætum starfað við það sem okkur finnst skemmtilegast“. Aðspurðar segja
þær að starfið sé lifandi og fjölbreytt og það séu forréttindi að fá tækifæri til að vinna með öllu þessu ólíka fólki úr mörgum og mismunandi
fagstéttum samfélagsins. „Ekkert verkefni eða atburður er eins sniðinn, sem gerir starfið einnig sérstaklega sjarmerandi, við þurfum alltaf að
vera á tánum þar sem hvert smáatriði skiptir máli.“
Nú líður að eins árs afmæli Athygli ráðstefna og í nógu að snúast. „Við getum ekki annað en verið ánægðar með verkefnastöðuna og erum
nú þegar byrjaðar að skipuleggja ráðstefnur sem verða haldnar 2013 og 2014“. Fyrirtæki og stofnanir eru vel vakandi fyrir mikilvægi þess að
viðhalda framþróun og þekkingu með því að hittast og eiga samskipti við kollega sína og viðskiptavini. „Við hvetjum alla sem eru í þeim
hugleiðingum að halda ráðstefnu eða fund að hafa samband og kynna sér þjónustu okkar. Þegar á heildina er litið er best fyrir fyrirtæki og
stofnanir að leggja allt utanumhald í í hendur sérhæfðrar ráðstefnuþjónustu. Það er í mörg horn að líta og þegar upp er staðið sparar
gestgjafinn lítið eða ekkert á þvi að ætla að gera hlutina sjálfur, það hefur reynslan að minnsta kosti sýnt fram á. Við höldum utan um allt
skipulag , frá skráningu gesta, samskiptum við birgja og þjónustuaðila og yfir í að gæta að hverju smáatriði með það að markmiði að gera
hvert verkefni eftirminnilegt”.
Okkar vinna byggist á samstarfi, við stöndum ekki einar og það er eitt af því sem gerir starfið okkar áhugavert og heildina sterkari. Það eru
margir rekstraraðilar sem koma að hverju verkefni og mikilvægt fyrir ráðstefnuþjónustur að geta stólað hundrað prósent á þá sem unnið er
með þegar kemur til dæmis að fundaraðstöðu, gistingu, akstri, hátíðarkvöldverði, prentun og blómaskreytingum. „Við vinnum stöðugt að því
að bæta alla þá þætti sem á endanum leiða til þess að viðkomandi viðburður heppnist fullkomlega, ef hlutirnir ganga upp þá myndast gott
andrúmsloft sem fylgir gestunum þegar þeir kveðja og það er klárlega markmiðið.”
Fyrirtækið Athygli ráðstefnur er rekið af þeim, Birnu Berndsen og Þórunni Dögg Árnadóttur sem báðar hafa langa starfsreynslu á sviði skipulagningar og reksturs ráðstefna, funda og viðburða. „Við stóðum báðar á tímamótum og huga þurfti að framtíðinni, þá kom eiginlega ekkert annað til greina en að ráðast í að stofna fyrirtæki þar sem við gætum starfað við það sem okkur finnst skemmtilegast“. Aðspurðar segja þær að starfið sé lifandi og fjölbreytt og það séu forréttindi að fá tækifæri til að vinna með öllu þessu ólíka fólki úr mörgum og mismunandi fagstéttum samfélagsins. „Ekkert verkefni eða atburður er eins sniðinn, sem gerir starfið einnig sérstaklega sjarmerandi, við þurfum alltaf að vera á tánum þar sem hvert smáatriði skiptir máli.